Hvað gerir BERG fyrir sína félagsmenn?
Öflugur sjúkrasjóður
Mjög sterkur sjúkrasjóður sem fylgir félagsmönnum sínum út lífið. Eftir starfslok vegna aldurs halda félagsmenn réttindum sínum til styrkja úr sjóðnum.
Menntunarsjóður
Menntunarsjóður tekur þátt í vinnutengdum námskeiðum og tómstundanámi og er í samstarfi við Samtök Atvinnulífsins með sérhæft 5 lotu stjórnendanám í fjarkennslu við Háskólann á Akureyri. Stjornendanam.is
Heilsustyrkir
Berg greiðir 35.000 kr. heilsustyrki til félagsmanna sinna og býður útilegu- og veiðikortið með verulegum afslætti.
Orlofseignir
Félagið er þátttakandi í orlofsvefnum Frímann, þar eru íbúðir í Reykjavík og bústaðir víða um land sem félagsmönnum gefst kostur á að sækja um. https://www.orlof.is/vssi/
Eitt lægsta félagsgjaldið
Félagsgjald hjá Berg er einungis 0,7% af heildarlaunum.
BERG er fyrir...
- Stjórnendur og aðra sem gegna ábyrgðarstöðum.
- Einyrkja og aðra sem stunda sjálfstæða atvinnustarfssemi.
- Verktaka sem starfa innan fyrirtækja.
- Starfsmenn án mannaforráða í sértækum eða sérhæfðum verkefnum.
Styrkir til félagsmanna
Hér að neðan má sjá nokkra af þeim styrkjum sem Berg veitir félagsmönnum sínum en nánar má kynna sér þá hér
Sjúkra- þjálfun og nudd, kírópraktor
Allt að 75% af kostnaði, hámark 80.000 á 12 mánaða tímabili.
Menntunarstyrkur
150.000 kr. á ári fyrir starfstengt nám, 10.000 kr. fyrir tómstundanám á 12 mán tímabili, hámark 80% af reikningi
Ferðakostnaður
Vegna veikinda, aðgerða og rannsókna að læknisráði, 25.000 kr. á hverja ferð fram og til baka sem er yfir 400 km. Hámark 12 ferðir á ári
Heilsustyrkur
Allt að 75% af reikningi, hámark 30.000 kr. til félagsmanna á hverju 12 mánaða tímabili. Regluleg ástundun í sund- skíða- eða golfiðkun, ásamt líkamsræktarstöðvum er styrkhæf.
Hjartavernd & Heilsufarsskoðun
Hjartavernd, 75% af kostnaði, hámark 25.000 kr á 4 ára fresti.
Heilsufarsskoðun, 75% af kostnaði, hámark 36.000 kr. á 4 ára fresti.
Veikindi maka/barna
Styrkur til aðhlynningar og vegna mjög alvarlegra eða langvarandi veikinda og/eða andláts maka eða barna innan 18 ára aldurs. Sjá nánar reglugerð sjúkrasjóðs
Skrifstofa félagsins
Skrifstofa félagsins er staðsett á 2 hæð á Glerártorgi á Akureyri.
Opnunartímar skrifstofu eru milli 13:00-16:00 mánudaga, miðvikudaga og 10 – 13 föstudaga. Sími 568 3000
Fyrir launagreiðendur
Bókunarmiðstöð Kt. 680269-7699. Banki 0130-26-375
Fréttir og tilkynningar
Nýjustu fréttir, hér má skoða allar fréttir
Kjarasamningar 1. febr. 2024
Nýr kjarasamningur STF og SA hefur verið samþykktur af félagsmönnum STF.Samningurinn er afturvirkur frá 1. febrúar 2024.Gildistími kjarasamnings þessa er frá 1. febrúar til 1. febrúar 2028.
Sumarúthlutun 2024
Sumarúthlutun orlofshúsa 2024Kæru félagar.Hér eru reglur fyrir úthlutanir sumarið 2024Umsóknir fyrir sumarúthlutun orlofshúsa hjá Berg félagi stjórnanda hefst þann 28. febrúar og stendur til 11. mars. Á þeim tíma er hægt að sækja um orlofshúsið okkar að Vatnsenda....
Álalindir opið fyrir leigu fram til september.
Góðan dag.Eins og eflaust sumir hafa tekið eftir er búið að opna fyrir leigur í sumar í íbúðunum okkar á höfuðborgarsvæðinu. Álalind 3 og Álalind 20 verða í venjubundinni útleigu í sumar, helgar og stakir dagar en ekki í sumarúthlutun.
Jólakveðja
Breytingar á Frímann
Ágæta félagsfólk, 24. nóvember 2023Nú um áramótin verður breyting á Frímannskerfinu hjá okkur (Orlofshúsakerfi).Hingað til hefur fólk eignast inneign þegar afpantaðar eru leigur á Frímann. Þær inneignir hafa svo nýst upp í næstu leigu á Frímann og eitthvað hefur verið...
Sumarfrí
Lokað verður á skrifstofu Bergs vegna sumarfrís frá og með 26/7. til og með 10/8.Semsagt síðast opið mánudaginn 24/7 kl.13 - 16 og síðan ekki fyrr en mánudaginn 14/8 kl.13. Við mynnum á heimasíðuna www.bergfs.is en þar er hægt að sækja um flest með ýmsum flipum og í...
Orlofsvefurinn Frímann – breyting.
Sú breyting hefur orðið á reglum orlofsvefsinns Frímanns að árinu hefur verið skipt niður í tímabil þar sem félagsmönnum hvers félags gefst kostur á að sækja um úthlutun/pannta í eigin bústað á undan öðrum félögum. Þá er auglýst opnun í tvær vikur fyrir félagsmenn...
Þrif á orlofseignum Bergs.
Þrif á orlofseignum okkar hækka nú um mánaðarmótin um kr. 1.000. Verður þá: Þrif Álalind 3 kr. 10.000, Álalind 20 kr. 8.000 og Vatnsendi kr. 10.000 hjá þeim sem kaupa þrif eftir 1. júní.
Veiðikort og útilegukort 2023
Nú eru útilegukortin og veiðikortin komin í hús hér á skrifstofu Bergs. Hægt er að kaupa veiðikortið á mínar síður og sækja hingað eða fá sent. Útilegukortið er hinns vegar bara til sölu hér á skrifstofunni. Greiðslan er millifærð og kortið annað hvort sótt eða fengið...
Sumarúthlutanir
Sumarúthlutun orlofshúsa 2023Kæru félagar.Umsóknir fyrir sumarúthlutun orlofshúsa Bergs félags stjórnenda Norðurlandi eystra, hefst þann 15. mars og stendur til 28.mars. Á þeim tíma er hægt að sækja um orlofshúsið okkar á Vatnsenda Ólafsfirði. Íbúðirnar okkar í...
Hafa samband
Upplýsingar fyrir launagreiðendur
Stéttarfélagsnúmer Bergs er 936 kennitala Bergs er 540775-1179, sem fer á skilagreinina.
Félagsgjald er 0,7% af heildarlaunum, Sjúkrasjóðsgjald er 1% af heildarlaunum , orlofssjóðsgjald er 0,25% og starfsmenntasjóður er 0,4% af heildarlaunum.
Félags- sjúkra- orlofssjóðsgjöld- og starfsmenntasjóður greiðist inn á reikning í Landsbanka Íslands :130-26-375 kt. 680269-7699. (Bókunarmiðstöð)
Senda má skilagreinar rafrænt með XML skjali á slóðina https://secure.
Notendur DK geta farið í Launakerfi>uppsetning>
Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér möguleikana á rafrænum sendingum.
Lágmarks tekjuviðmið 1. júní 2023, 558.626 kr.
Heimilisfang fyrir skilagreinar sem berast í pósti:
Berg félag stjórnenda
Glerártorgi, 2. hæð
600, Akureyri
NETFANG FYRIR SKILAGREINAR Á pdf FORMI : bergfs@bergfs.is
BERG
Félagsgjöld
Félagsgjald: 0,7 % af heildarlaunum
Sjúkrasjóður: 1 % af heildarlaunum
Orlofssjóður: 0,25 % af heildarlaunum
Starfsmenntasjóður: 0,4 % af heildarlaunum
Bókunarmiðstöð
Kt. 680269-7699.
Banki 0130-26-375
Staðsetning