22. apríl 2026
Aðalfundur 2026
Akureyri 22. apríl 2026
Ágæti félagsmaður
Í meðfylgjandi pósti er aðalfundarboð, en fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 14. maí í sal gamla skólans að Skógum í Fnjóskadal kl. 17.30
Í stjórnarkjöri á komandi aðalfundi skal kosið um varaformann, gjaldkera, meðstjórnanda og einn varamann. Núverandi stjórnarmeðlimir gefa kost á sér til áframhaldandi starfa.
Við beinum því til ykkar, félagsmanna Bergs, að benda fólki á að kynna sér félagið okkar. Við búum að mjög öflugum sjúkrasjóði og menntunarsjóði, að auki erum við með eitt lægsta félagsgjald sem stéttarfélag býður upp á. Allar frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni okkar www.bergfs.is
Minnum á að skrifstofa félagsins er á Glerártorgi, 2.hæð, á sama gangi og Blóðbankinn, Lækna- og Tannlæknastofur Akureyrar.
Heimasíðan og Facebook. Vefslóðin á heimasíðuna er www.bergfs.is. Facebook síða er tengd heimasíðunni og hvetjum við alla til að líka við síðuna til að fá upplýsingar þaðan og deila henni meðal sinna vina.
Úthlutun orlofshúsa er lokið, enn eru nokkrar vikur lausar á Vatnsenda í sumar.
Leiguverð á viku að Vatnsenda er 49.900 kr. í sumar.
Íbúðirnar í Álalind 3 og Álalind 20 verða áfram í helgarleigu og sólarhringsleigu í miðri viku eins og áður en voru ekki settar í sumarúthlutun og vikuleigu.
Í Frímann, orlofsvefnum, kemur sjálfkrafa inn niðurgreitt verð til okkar félagsmanna varðandi Álalind 3 og Álalind 20.
Mögulegt er að kaupa þrif á orlofsvefnum; Álilnd 3 og Vatnsendi kr. 10.000 og Álalind 20 kr. 8.000.
Hægt er að sækja um orlofshús á bergfs.is > mínar síður (Rafræn skilríki) > orlofseignir.
Boðið verður upp á góða súpu og sætt á eftir að hætti Félags barnaskólans að Skógum.
Einnig verður farið á lóð Bergs í Skógahlíð 1 og tekin fyrsta skóflustunga fyrir nýtt orlofshús félagsins.
Vinsamlega látið vita tímanlega með mætingu á fundinn í netfangið bergfs@bergfs.is eða í síma 568-3000. Lokafrestur til að láta vita er kl.14 miðvikudaginn 6. maí. Opnunartími skrifstofu er: mánud. kl. 13 – 16, miðvikud. kl. 13 – 16 og föstud. kl. 10 – 13.
Gleðilegt sumar og sjáumst á aðalfundi.
