Umhverfisstefna
Tilgangur og umfang
Umhverfisstefnan tekur til allrar starfsemi Bergs félag stjórnenda og starfsfólk skal virða hana í öllum störfum sínum.
Stefna Bergs félag stjórnenda
Berg vill axla ábyrgð í umhverfismálum og minnka kolefnisspor sitt sem ábyrgur hlekkur í vistkeðjunni. Félagið starfar samkvæmt lögum og reglum og leitar stöðugrar leiða til draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar og koma í veg fyrir mengun. Stuðla að verklagi, sem leiðir til aukinnar endurvinnslu, minni mengunar og til bættrar nýtingar og sparnaðar á öllum sviðum þjónustu okkar. Með því að móta verklag félagsins með vistvernd í huga og með því að fylgja lögum og reglugerðum um umhverfismál leggur starfsfólk sitt af mörkum til að minka umhverfisáhrif starfseminnar. Félagið hefur sett sér umhverfismarkmið og fylgjumst við með árangrinum.
Berg félag stjórnenda leggur áherslu á að:
• Draga úr kolefnisspori rekstursins
• Vera meðvituð um lámarka pappírs notkun
• Vistvæn innkaup
• Nota Svansvottuð efni til þrifa og fl.
• Fara vel með auðlindir og koma í veg fyrir sóun
• Lágmarka úrgang og auka endurvinnslu
• Fræða starfsfólk um stefnu fyrirtækisins, ábyrgð og hlutverk þeirra við að framfylgja henni
• Velja eftir því sem hægt er birgja og þjónustuaðila sem uppfylla umhverfissjónarmið félagsins
• Fylgjast með þróun á nýjungum sem nýtist félaginu og umhverfisstefnu þess
