8. maí 2026
Aðalfundur 2026.
Haldinn var Aðalfundur Bergs fimmtudaginn 7. maí í Skógum Fnjóskadal.
Góður fundur í alla staði og hefðbundin dagskrá. Engar breytingar urðu á stjórn, en allir gáfu kost á sér áfram. Staða félagsins er góð en alltaf er áhersla á að fjölga félagsmönnum.
Góðar veitingar úr heimasveit og gaman að koma í þetta gamla hús.
Að loknum fundi var farið á lóð félagsins Skógahlíð 1 og tekin fyrsta skóflustungan.
Allir félagsmenn hvattir til að kynna félagið og benda á heimasíðuna www.bergfs.is og reyna að fá 1 - 2 til liðs við okkur. :)

