Næsta opnun - haust til jóla - breytt fyrirkomulag.
11. maí 2026
Góðan dag ágæta félagsfólk Bergs.
Nú verður svolítil breyting á fyrirkomulagi við opnun hvers tímabils á orlofsvefnum.
Næsta opnun á Frímann verður 19. maí kl. 11:00, þegar opnað verður fyrir tímabilið 26. ágúst – 22. desember 2026.
Við ætlum þá að hafa það fyrirkomulag að hvert félag geti eingöngu leigt sínar eigin eignir fyrstu 4 vikurnar og hafi þannig forgang að þeim.
Það eru þá Álalind 3, Álalind 20 og Vatnsendi hjá okkur.
Þann 16. júní kl. 11:00 verður síðan opnað fyrir að allir geti bókað eignir hjá öllum félögum - fyrstir koma fyrstir fá.
Bestu sumarkveðjur. :)