27. febrúar 2026
Námskeið um gerfigreind
Námskeið um gervigreind
STF býður félagsfólki upp á niðurgreiðslu á fjarnámskeið á vegum Stjórnendanámsins um hagnýta notkun gervigreindar í starfi. Gervigreindin getur verið öflugur aðstoðarmaður — en til að hún nýtist vel þarf að kunna að setja verkefni upp, gefa rétt samhengi og spyrja á markvissan hátt.
Námskeiðið stendur yfir 18. mars–11. apríl og fer bæði yfir grunnatriði gervigreindar og það sem skiptir mestu máli í daglegri notkun. Fjallað verður um hvernig gervigreind virkar, helstu styrkleika og takmarkanir, og hvað er mikilvægt að hafa í huga við notkun hennar í vinnuumhverfi.
Zoom-fundir verða 23. og 30. mars kl. 20:00.
Námskeiðið er 80% niðurgreitt fyrir félagsfólk STF. Verð til félaga er því 7.800 kr. með því að nota kóðann STF í kaupferlinu.
Sæktu um styrki, bókaðu bústaði og haltu utan um umsóknir – allt á einum stað:

