31. ágúst 2026
Næsta opnun á Frímann.
Góðan dag ágæta félagsfólk Bergs.
Nú á haustdögum er komið að næsta tímabili sem opnar á orlofsvefnum = byrjun árs 2027.
Næsta opnun á Frímann verður 22. september kl. 11:00, þegar opnað verður fyrir tímabilið 5. janúar 2027 – 2. júní 2027.
Á þessu tímabili er hægt að vera með 2 bókanir.
Við ætlum áfram að hafa það fyrirkomulag að hvert félag geti eingöngu leigt sínar eigin eignir fyrstu 4 vikurnar og hafi þannig forgang að þeim.
Það eru þá Álalind 3, Álalind 20 og Vatnsendi hjá okkur.
Bestu haustkveðjur. :)

