-LÖG: BERG FÉLAG STJÓRNENDA
I. kafli. Heiti félagsins, starfssvið, tilgangur og félagsmenn.
1. grein.
Félagið heitir BERG félag stjórnenda.
Heimili þess og varnarþing er á Akureyri. Starfssvæði þess er á Norðurlandi eystra, í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslu, frá Ólafsfirði í vestri til Þórshafnar í austri.
Félagið er aðili að Sambandi Stjórnendafélaga, STF og starfar samkvæmt lögum þess.
2. grein.
Tilgangur félagsins er:
– Að starfa sem skipulagsbundið stéttarfélag stjórnenda á félagssvæðinu, án stjórnmálaafskipta.
– Að gæta hagsmuna félagsmanna varðandi atvinnuskilyrði, launakjör og réttindi.
– Að vinna að aukinni menntun, verkhæfni og framförum meðal félagsmanna, styrkja þá til menntunar
og stuðla að auknum möguleikum þeirra að nýta sér það námsefni sem í boði er.
-Að vinna að orlofsmálum félagsmanna með það markmið að auka möguleika þeirra til að njóta orlofs. – Aðstoða félagsmenn í atvinnuleit og veikindum. 3. grein.
Félagar geta þeir einir verið:
– Sem starfa sem stjórnendur eða gegna öðrum ábyrgðarstöðum.
– Einyrkjar og aðrir þeir sem stunda sjálfstæða atvinnustarfssemi.
– Stjórnendur sem látið hafa af störfum vegna aldurs eða veikinda. – Verktakar sem starfa innan fyrirtækja. – Starfsmenn án mannaforráða í sértækum eða sérhæfðum verkefnum.
4. grein.
– Inntökubeiðni í félagið skal gera á heimasíðu félagsins. – Tekur hún gildi um leið og greiðslur berast.
5. grein.
Grunni félagsgjalds má ekki breyta nema á aðalfundi. Gjaldið skal ákvarðast sem prósenta af heildartekjum
sem nú er 0,70 % . Félagsmenn sem hafa ekki lengur bætur úr sjúkrasjóði vegna sjúkdóms eða slysa, skulu njóta
gjaldfríðinda vegna félagsgjalds þar til þeir hefja störf að nýju. Félagsmenn á eftirlaunum njóta einnig
gjaldfríðinda félagsgjalds. Gjaldfríðindi skerða ekki félagsréttindi. Stjórn félagsins hefur heimild til að fella út af
félagsskrá hvern þann sem ekki nýtur sérstarka gjaldfríðinda og hefur ekki greitt áskilin félagsgjöld í sex mánuði.
II. kafli. Réttindi, skyldur, réttindamissir og brottvikning
6. grein.
Réttindi félagsmanna á fundum eru málfrelsi, tillöguréttur og atkvæðisréttur skv. almennum fundarsköpum.
7. grein.
Skyldur félagsmanna eru:
– Að hlýða fyrirmælum félagsins, lögum þess, reglugerðum og samningum.
– Að gegna trúnaðarstörfum fyrir félagið.
– Að fylgjast með að áskilin gjöld séu greidd til félagsins.
– Að halda öllu sem gerist á fundum félagsins stranglega innan vébanda þess, ef stjórn æskir þess.
– Verði félagsmaður uppvís að því að vinna gegn stefnu félagsins getur það varðað hann brottvikningu.
8. grein.
Þegar félagsmaður hefur gengt sama trúnaðarstarfi fyrir félagið tvö kjörtímabil samfleytt, þá getur hann skorast
undan endurkjöri til þess starfs í jafn langan tíma.
9. grein.
Komi upp ágreiningur á milli atvinnurekanda og félagsmanns um atvinnumál, getur viðkomandi félagsmaður
lagt málið fyrir stjórn félagsins. Skal stjórnin taka málið til athugunar og reyna að miðla málum með hagsmuni
félagsmannsins að leiðarljósi. Ef lausn næst ekki innan mánaðar, skal stjórnin vísa því til STF til úrlausnar.
10. grein.
Félagsmenn eru algjörlega hlutlausir í öllum kaupdeilum milli vinnuveitanda og undirmanna þeirra, hvort sem
um er að ræða verkföll eða verkbönn. Ákvæði þessarar greinar skerðir ekki verkfallsrétt stjórnanda.
11. grein.
Skylt er hverjum félagsmanni að gæta þeirra verðmæta sem hann hefur umsjón með og verja þau skemmdum
eftir eigin getu.
III. kafli. Stjórn félagsins og störf hennar.
12. grein.
Aðalstjórn félagsins er skipuð fimm mönnum og þremur til vara, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og
meðstjórnanda. Skulu þeir kosnir á aðalfundi, hver fyrir sig. Kjörtímabil aðalstjórnar er tvö ár, þ.a. annað árið er kosið um formann, ritara og tvo varamenn,en hitt árið um varaformann, gjaldkera, meðstjórnanda og einn varamann. Einnig skulu kosnir á sama hátt tveirskoðunarmenn reikninga til tveggja ára og tveir til vara. Kosning skal vera skrifleg ef óskað er.
Framboði til stjórnar skal lýsa eigi síðar en 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund ár hvert.
Stjórn félagsins er heimilt að skipa vinnuhópa til að sinna tilfallandi verkefnum ef ástæða er til.
13. grein.
Formaður félagsins er forseti stjórnar og jafnframt framkvæmdastjóri félagsins. Hann hefur eftirlit með því að
þeir sem kosnir hafa verið til trúnaðarstarfa fyrir félagið gegni skyldum sínum við það. Formaður boðar til funda
og stýrir þeim.
BERG félag stjórnenda Norðurlandi eystra – Hofsbót 4 – 600 Akureyri – sími 568 3000 – www.bergfs.is – bergfs@bergfs.is
14. grein.
Ritari heldur gjörðabók og skrásetur í hana stuttorðar og hlutlausar skýrslur um það sem fer fram á fundum
félagsins. Heimilt er að líma útprentaðar fundargerðir inn í gjörðabók. Viðstaddir fundarmenn undirrita bókanir.
15. grein.
Gjaldkeri annast dagleg fjármál félagsins í samráði við formann félagsins.
Stjórnin varðveitir eignir félagsins og ávaxtar þær. Reikningsár félagsins er almanaksárið.
16. grein.
Stjórn félagsins fer með æðsta vald í öllum málefnum félagsins milli aðalfunda. Hún setur sér starfsreglur sem
skulu vera aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Allar styrkveitingar skulu samþykktar af stjórn. Milli stjórnarfunda er
heimilt að ákvarðanataka stjórnar sé með rekjanlegum rafrænum hætti. Slíkar ákvarðanir skulu síðan formlega
staðfestar á næsta stjórnarfundi. Stjórn félagsins hefur fullt umboð til að kaupa og selja fasteignir, þ.m.t.
sumarhús og íbúðir í eigu félagsins og fulla heimild til veðsetningar á eignum félagsins. Ávallt skal meirihluti
stjórnar skrifa undir kaup, sölu eða veðsetningar á eignum félagsins.
Stjórn félagsins skal sjá um rekstur, úthlutun og umsjón með fasteignum félagsins.
17. grein.
Stjórn félagsins er skylt að kynna mikilvæg mál fyrir félagsmönnum, svo sem mál er varðar samninga við önnur
félög eða einstaklinga, sem og ef um þýðingarmikil atvinnumál er að ræða.
IV. kafli. Fundarhöld og fleira.
18. grein.
Aðalfund skal halda fyrir lok júnímánaðar ár hvert. Hann er löglegur ef stjórn félagsins boðar til hans með
minnst 14 daga fyrirvara. Heimilt er að fundarboð sé með rafrænum hætti. Takist ekki að ljúka
aðalfundarstörfum skal boða til framhaldsaðalfundar á sama hátt og fyrr segir, innan þriggja vikna.
19. grein.
Á aðalfundi skal kjósa fundarstjóra og fundarritara úr hópi fundarmanna utan stjórnar. Fundarstjóri stýrir
umræðum og kosningum samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá og undirritar fundargerðir ásamt fundarritara.
Almenn fundarsköp gilda á fundum félagsins nema annað verði ákveðið með sérstakri reglugerð.
20. grein.
Meðal dagskrárliða á aðalfundum skal stjórnin gera grein fyrir starfi stjórnarinnar á síðasta reikningsári og leggja
fram endurskoðaða reikninga fyrir alla sjóði félagsins.
Á aðalfundi skal árlega kjósa einn mann og varamann í hans stað úr stjórn félagsins til setu í stjórn STF.
Sé fyrirhuguð lagabreyting skal þess getið í fundarboði ásamt öðrum fundarefnum.
Lagabreytingar eru einungis afgreiddar á aðalfundi.
21. grein.
Fundi skal halda svo oft sem stjórninni þykir ástæða til, eða þegar minnst 20 félagar æskja þess skriflega og
tilgreina fundarefnið. Ber þá stjórninni að boða til fundar innan þriggja vikna frá því að óskin berst. Sömu reglur
gilda um fundarboð sem á aðalfundi.
22. grein.
Stjórnarfundir skulu haldnir reglulega, minnst sex sinnum á milli aðalfunda. Formaður skal ávallt leggja fram
ákveðna dagskrá og málin rædd og afgreidd skipulega samkvæmt henni.
BERG félag stjórnenda Norðurlandi eystra – Hofsbót 4 – 600 Akureyri – sími 568 3000 – www.bergfs.is – bergfs@bergfs.is
V. kafli. Gjaldheimta, niðurlagsákvæði og fleira.
23. grein.
Félagsgjöld ber að greiða mánaðarlega. Félagsmönnum ber að fylgjast með því hvort vinnuveitendur þeirra
uppfylli skyldu sína í þessu efni. Standi félagsmaður í skuld við félagið í 6 mánuði eða meira og geti ekki sýnt
fram á að félagsgjöld hafi verið dregin af launum hans, eða greiðslu til félagsins missir hann réttindi sín þar til
hann hefur samið um skuld sína við félagið.
24. grein.
Stjórninni er heimilt að velja heiðursfélaga úr hópi félagsmanna sem hafa unnið félaginu sérstakt gagn, með
miklu og fórnfúsu starfi, eða með öðrum verðleikum.
Heiðursfélagar skulu aldrei vera fleiri en fjórir hverju sinni. Þeim skal afhenda heiðursskjal og eða heiðursmerki
eftir nánari ákvörðun með reglugerð.
Heiðursfélagar eru undanþegnir gjaldskyldu en halda öllum félagsréttindum. Félagssjóður greiðir gjöld af þeim
til STF eins og öðrum félagsmönnum sem eru undanþegnir gjaldskyldu.
25. grein.
Tillaga um samruna eða samvinnu félagsins við annað eða önnur félög eða slit á slíku samstarfi þarf sömu
meðferð og lagabreytingar.
26. grein.
Ekki er hægt að leysa félagið upp eða leggja starfsemi þess niður ef átta félagar eða fleiri óska eftir að halda
starfsemi þess áfram. Verði félagið hinsvegar lagt niður og starfsemi þess hætt, skal afhenda STF allar eignir
félagsins til varðveislu.
Verði félagið ekki endurreist, sameinað öðru stjórnendafélagi, eða nýtt stjórnendafélag stofnað á félagssvæðinu
innan fimm ára renna eignir þess alfarið til STF samkvæmt lögum þessum.
VI. kafli. Ágreiningur.
27. grein
Komi upp ágreiningur innan félagsins um túlkun á lögum þessum er heimilt að leita lögfræðilegs úrskurðar STF
um málið. Náist ekki sátt um þann úrskurð, má skjóta ágreiningsefnum til dómsstóla til endanlegrar niðurstöðu.
Ekki má breyta lögum þessum, úr þeim fella ,né við þau auka nema á löglegum aðalfundi félagsins.
Gildistími breytinga á lögum: Aðalfundur VAN 14. apríl 2005. Aðalfundur BERGs 17. apríl 2012.
Aðalfundur Bergs 11. apríl 2018. Breytingar á lögum skv. tillögum þessum taka gildi við slit aðalfundar Bergs.
BERG
Félagsgjöld
Félagsgjald: 0,7 % af heildarlaunum
Sjúkrasjóður: 1 % af heildarlaunum
Orlofssjóður: 0,25 % af heildarlaunum
Starfsmenntasjóður: 0,4 % af heildarlaunum
Bókunarmiðstöð
Kt. 680269-7699.
Banki 0130-26-375
Staðsetning