568-3000 - Stéttarfélag stjórnenda og lykilstarfsfólks - bergfs@bergfs.is

Akureyri

Mývatn

Húsavík

Ólafsfjörður

Hvað gerir BERG fyrir sína félagsmenn?

Öflugur sjúkrasjóður

Mjög sterkur sjúkrasjóður sem fylgir félagsmönnum sínum út lífið. Eftir starfslok vegna aldurs halda félagsmenn réttindum sínum til styrkja úr sjóðnum.

Menntunarsjóður

Menntunarsjóður tekur þátt í vinnutengdum námskeiðum og tómstundanámi og er í samstarfi við Samtök Atvinnulífsins með sérhæft 5 lotu stjórnendanám í fjarkennslu við Háskólann á Akureyri. Stjornendanam.is

Heilsustyrkir

Berg greiðir 35.000 kr. heilsustyrki til félagsmanna sinna  og býður útilegu- og veiðikortið með verulegum afslætti.

Orlofseignir

Félagið er þátttakandi í orlofsvefnum Frímann, þar eru íbúðir í Reykjavík og bústaðir víða um land sem félagsmönnum gefst kostur á að sækja um. https://www.orlof.is/vssi/  

Eitt lægsta félagsgjaldið

Félagsgjald hjá Berg er einungis 0,7% af heildarlaunum.  

BERG er fyrir...

  • Stjórnendur og aðra sem gegna ábyrgðarstöðum.
  • Einyrkja og aðra sem stunda sjálfstæða atvinnustarfssemi.
  • Verktaka sem starfa innan fyrirtækja.
  • Starfsmenn án mannaforráða í sértækum eða sérhæfðum verkefnum.

Styrkir til félagsmanna

Hér að neðan má sjá nokkra af þeim styrkjum sem Berg veitir félagsmönnum sínum en nánar má kynna sér þá hér

Sjúkra- þjálfun og nudd, kírópraktor

Allt að 75% af kostnaði, hámark 80.000 á 12 mánaða tímabili.

Menntunarstyrkur

150.000 kr. á ári fyrir starfstengt nám, 10.000 kr. fyrir tómstundanám á 12 mán tímabili, hámark 80% af reikningi

Ferðakostnaður

Vegna veikinda, aðgerða og rannsókna að læknisráði, 25.000 kr. á hverja ferð fram og til baka sem er yfir 400 km. Hámark 12 ferðir á ári

Heilsustyrkur

Allt að 75% af reikningi, hámark 30.000 kr. til félagsmanna á hverju 12 mánaða tímabili.  Regluleg ástundun í sund- skíða- eða golfiðkun, ásamt líkamsræktarstöðvum er styrkhæf.

Hjartavernd & Heilsufarsskoðun

Hjartavernd, 75% af kostnaði, hámark 25.000 kr á 4 ára fresti.
Heilsufarsskoðun,  75% af kostnaði, hámark 36.000 kr. á 4 ára fresti.

 

Veikindi maka/barna

Styrkur til aðhlynningar og vegna mjög alvarlegra eða langvarandi veikinda og/eða andláts maka eða barna innan 18 ára aldurs. Sjá nánar reglugerð sjúkrasjóðs

Skrifstofa félagsins

Skrifstofa félagsins er staðsett á 2 hæð á Glerártorgi á Akureyri.

Opnunartímar skrifstofu eru milli 13:00-16:00 mánudaga, miðvikudaga og 10 – 13 föstudaga. Sími 568 3000

Fyrir launagreiðendur


Bókunarmiðstöð Kt. 680269-7699. Banki 0130-26-375

Fréttir og tilkynningar

Nýjustu fréttir, hér má skoða allar fréttir

Heilsustyrkurinn

Nú 2021 hefur Heilsustyrkurinn hjá Bergi verið hækkaður í 30.000. kr.Eins og áður er hægt að sækja um einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili og þarf áskrift að líkamsrækt að vera að lágmarki til 3 mánaða. Þægilegt er að sækja um hér á heimasíðu Bergs undir Styrkir, en...

Opnunartími skrifstofunnar.

Góðan dag. Nú ætlum við að breyta opnunartíma skrifstofu örlítið og teljum það til hagsbóta fyrir félagsmenn. Þá geta þeir sem það hentar, komið í hádeginu eða að morgni, einn dag í viku. Breytingin felst þá í því að á föstudögum verður opið kl. 10 – 13. Óbreyttur...

Stjórnendanám

Góðan daginn. Við viljum vekja athygli ykkar á Stjórnendanámi Stjórnendafræðslunnar. Lota 1 í Stjórnendanámi Stjórnendafræðslunnar hefst 6. september. Opið er fyrir umsóknir og er afsláttur veittur af skráningargjaldi til þeirra sem skrá sig fyrir 6. ágúst. Þá er...

HEILSUSTYRKUR

HEILSUSTYRKUR

Nú á haustdögum eru margir að fá sér kort í ræktina og viljum við minna á að einungis áskriftarkort að lágmarki til þriggja mánaða eru styrkhæf.

Hafa samband

Upplýsingar fyrir launagreiðendur

Stéttarfélagsnúmer Bergs er 936 kennitala Bergs er 540775-1179, sem fer á skilagreinina.

Félagsgjald er 0,7% af heildarlaunum, Sjúkrasjóðsgjald er 1% af heildarlaunum , orlofssjóðsgjald er 0,25% og starfsmenntasjóður er 0,4%  af  heildarlaunum.

Félags- sjúkra- orlofssjóðsgjöld- og starfsmenntasjóður greiðist inn á reikning í Landsbanka Íslands :130-26-375 kt. 680269-7699. (Bókunarmiðstöð)
Senda má skilagreinar rafrænt með XML skjali á slóðina https://secure.dkvistun.is/vssi/skilagreinar.exe annarsvegar (líkt og með skeytaskil til RSK). Þarf ekki lykilorð.

Notendur DK geta farið í Launakerfi>uppsetning>Rafrænir innheimtuaðilar>F5>uppfæra innheimtuaðila.  Og senda þannig rafrænt beint en aðrir geta sent skilagreinarnar á SAL formi með tölvupósti á netfangið skbiv@vssi.is
Launagreiðendur eru hvattir til að nýta sér möguleikana á rafrænum sendingum.

Lágmarks tekjuviðmið 1. júní 2023, 558.626 kr.

 

Heimilisfang fyrir skilagreinar sem berast í pósti:

Berg félag stjórnenda

Glerártorgi, 2. hæð
600, Akureyri

NETFANG FYRIR SKILAGREINAR Á pdf FORMI :  bergfs@bergfs.is

9 + 9 =

BERG 

Félagsgjöld

Félagsgjald: 0,7 % af heildarlaunum
Sjúkrasjóður: 1 % af heildarlaunum
Orlofssjóður: 0,25 % af heildarlaunum
Starfsmenntasjóður: 0,4 % af heildarlaunum

Bókunarmiðstöð
Kt. 680269-7699.
Banki 0130-26-375

Staðsetning

Glerártorg 2 hæð 600, akureyri

i

KT: 540775-1179

bergfs(hjá)bergfs.is

568 3000

568 3000

Glerártorg 2 hæð